26.10.2008 | 10:45
Smá Copy/Paste
Ég veit ég hef verið rosalega lélegur bloggari undanfarið. Bara nenni því ekki svo hefur tölvan verið að bögga mig og loks missti ég netið út. En eins og hjá flestum rignir yfir mann mis gáfulegum tölvuskeitum og flest lenda nú bara í ruslatunninni en samt er eitt og eitt sem er gullkorn og hér er eitt sem mér fannst ég verða að birta og ég vona bara að sú sem skrifaði þetta hver sem hún er verði ekki súr við mig fyrir þetta tiltæki því þetta er akkúrat mergurinn málsins.......Annars vorum við á árshátið Húsasmiðjunnar í gærkvöldi og það var mjög gaman, en hér er semsé copy/paste......
"Hvern fjandann er fólkið að meina?
Starfs míns vegna neyðist ég til að lesa kreppufréttir daginn út og
daginn inn. Auðvitað finnst mér þetta alveg hræðilegt og allt það
en það er eitt sem ég skil ekki. Flestir tala um að nú sé kominn tími
til að sinna börnunum sínum, fjölskyldu og vinum. Hvað í andskotanum
heldur þetta fólk að íslenskur almenningur hafi haft fyrir stafni? Skyldi það
ætla að við höfum verið viti okkar fjær og stigið trylltan dans í
kringum gullkálfinn á meðan börnin okkar, vinir og ættingjar lágu
óbættir hjá garði? Umkomulausir og einmana þar sem enginn hafði
nokkurn tíma fyrir þá?
Ég sjálf og allir sem ég þekki hafa nú verið uppteknir af því að
vinna fyrir sér, að vísu ekki að vinna fyrir bankastjóralaunum heldur bara
svona til að eiga fyrir salti í grautinn. Þessi sauðsvarti almúgi sem
ég þekki hefur bara hugsað vel um börnin sín, takk fyrir. Hringt í
vini og ættingja og heimsótt þá jafnvel ef sérlega vel hefur legið á
fólki. Mér finnst þessi umræða gjörsamlega fáránleg. Það er verið að
slá ryki í augun á okkur með því að við getum nú gert svo margt gott og
nytsamlegt þótt búið sé að ræna okkur aleigunni og marga starfinu.
Nú þakkar maður fyrir það helst að hafa þó vinnu. Það er verið að
koma inn hjá okkur samviskubiti, að við höfum nú ekki hugsað sem best um þá
sem næst okkur standa. Nú þegar við erum orðin atvinnulaus og blönk getum
við allavega gefið okkur tíma að sinna börnunum í stað þess að æsa
okkur yfir því að það sé búið að svipta okkur aleigunni og atvinnunni.
Við eigum nefnilega ekkert að vera að velta okkur upp úr því hver sé
ástæðan fyrir þessum hremmingum, við erum hvort eð er svo vitlaus að
við munum aldrei geta skilið að þetta var eiginlega alveg óvart og
mönnum í útlöndum að kenna. Hvað er svo sem að marka einhverja
aumingja sem eiga ekki einu sinni part í þyrlu?
Ég fyrir mína parta ætla að halda áfram að sinna börnunum mínum,
ættingjum og vinum. En ég ætla líka að vera reið, alveg fjúkandi
vond, og ekki hætta fyrr en ég hef fengið svör við því hvernig í
andskotanum allt gat farið hér til helvítis á einni nóttu.
Afsakið orðbragðið.
Kona"
Um bloggið
Ólöf Brynja Jónsdóttir
Tenglar
Bloggsíður sem ég skoða reglulega
- Pétur frændi
- Unnur frænka
- Bryndís Frænka
- Hafrún frænka
- Birgir Frændi
- Sævar frændi
- Synir mínir
- Stína skólasystir
- Stína kennari
- Mín ástkæra gamla blogcentral síða
Litla fólkið sem ég fylgist með
Fyrir matargötin
- Matarsíða ein í viðbót
- Lambakjöt
- Nanna hin eina og sanna
- Gestgjafinn
- Matur og aftur matur
- Eldhúsið
- Kornax
- Amma
Athyglisverðir linkar
Rokkið
Sitt lítið af hvoru
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.